Metsöluhöfundurinn Jean Carper segir hér frá stórkostlegum uppgötvunum, sem hafa gerbreytt viðteknum hugmyndum taugalífeðlisfræðinga um heilann. Til skamms tíma var talið að eftir fæðingu bættust engar nýjar taugafrumur í mannsheilann; greindin, mæld sem „gáfnavísitala" væri arfgeng. Nú er Ijóst að þetta stenst ekki; frumuskiptingar greinast í heilafrumum manna á öllum aldri. Í þessari mögnuðu bók er lesandinn leiddur inn á ný svið rannsókna, sem unnar eru á virtum vísindamiðstöðvum víða um heim, þar sem sýnt er, hvernig hægt er að móta heilann til þess að efla minni, greind, andlega hæfni og lundarfar með því að neyta réttrar fæðu með tilteknum heilaeflandi bætiefnum; allt frá gamalkunnum vítamínum til framandlegri efna eins og alfa-lípósýru, Ginkgo biloba og Q10.
Hér má líka lesa um það hvernig hægt er að hækka greindarvísitölu barna fyrir fæðingu; hvaða tegundir fitu hamla starfsemi heilafruma og hvaða tegundir gera okkur klárari og hamingjusamari; hvernig háþrýstingur getur minnkað heilann; hvaða fæðutegundir eru bestar til þess að skerpa minnið og yngja upp heilafrumur, auk margra annarra stórfróðlegra ráða til allra sem vilja bæta heilastarfsemina.
„Jean Carper er í hópi áreiðanlegustu höfunda um aðferðir til þess að bæta heilsuna á náttúrulegan hátt. Ég mæli með bókum hennar við bæði nemendur mína og sjúklinga.
- Andrew Weil, höfundur bókarinnar „Hollráð og heilsubót: Öðlist betri heilsu á átta vikum."
„Bókin er framúrskarandi upplýsingabrunnur um úrræði næringarefnafræðinnar til þess þess að hámarka heilavirkni og atferli."
- Lester Packer, Ph.D., prófessor í sameinda- og frumuliffræði við Kaliforníuháskóla í Berkeley, einn fremsti og virtasti fræðimaður heims á sviði andoxunarrannsókna.
Höfundur bókarinnar, Jean Carper (f. 1932), er í fremstu röð þeirra sem fjalla um heilsu og næringarefni. Hún hefur ritað margar bækur á þessu sviði, verið fastráðinn dálkahöfundur hjá USA Weekend og fengið ýmis verðlaun og aðrar viðurkenningar fyrir umfjöllun um heilsu og störf í sjónvarpi. Hún var um skeið yfirmaður dagskrárgerðar um heilsu og heilnæma lífshætti hjá CNN sjónvarpsstöðinni